
| Um Fuglahótel |
|
Erum með tvö mjög stór, innangeng búr þar sem fuglin getur verið með öðrum fuglum, en bjóðum einnig upp á pössun í eigin búrum. Hjá okkur er alltaf einhver við. Við höfum mikin áhuga á fuglum, sérstaklega gárum og finkum. Við erum ekki með ræktun sem slíka, en seljum unga þegar fer að þrengjast um í búrunum. Þetta er því gert meira okkur til gamans og dægradvalar. Þar sem við erum með nóg rými og vitum að það er vöntun á ,,hótel rými“ fyrir fugla, svo að fólk geti notið þess að fara áhyggjulaust í ferðalög á meðan gæludýrið er í öruggum höndum. Verð krónur 400 á fugglinn fyrir sólahringinn fyrir fyrstu vikuna, en 350 krónur sólahringurinn eftir það. |